Reiðskólinn Eðalhestar er starfandi í hestamannafélaginu Sprett sem er staðsett í Garðabæ, hét áður Andvari. Skólinn var stofnaður árið 2012. Námskeiðin eru ætluð fyrir börn frá 6 ára.
Hvert námskeið stendur yfir í 1. vikur frá mánudegi til föstudags nema annað komi fram.
Börnin þurfa að koma með nesti, vatnsbrúsa og föt eftir veðri.
Á staðnum er eldhús, örbylgjuofn, samlokugrill til afnota.
Hestar, öryggishjálmar, öryggisvesti og öll reiðtygi eru á staðnum fyrir börnin.