Á hverju námskeiði er markmiðið að hafa gaman saman, kynnast hestunum og nýjum vinum. Á sumarnámskeiðunum er börnunum skipt í fjóra hópa eftir getu og eða vinum. Farið verður yfir grunnreiðmennsku (ásetu og stjórnun), umgengni (hvernig á að umgangast hesta og leggja á) og farið í skemmtilega reiðtúra á þessu frábæra svæði sem við höfum í Spretti. Á móts við hestahlutan er farið í leiki með krökkunum. Farið er á hina ýmsu staði til að skemmta sér saman. Taka þarf með nesti(2-3) og föt eftir veðri því það er nóg að gera og við reynum að vera sem mest úti. Á föstudögum er planið að grilla saman og þá þurfa krakkarnir að taka með sér pylsur og brauð að heiman en við sköffum allt meðlæti á pulsurnar, það þarf því ekki að taka slíkt með. Lágmarks aldur á námskeiðin er 6 ára.
Vetrar- og Haustnámskeiðin Þessi námskeið eru tilvalinn fyrir krakka sem eiga ekki hest en langar að eiga hest. Þau munu hafa sinn hest út námskeiðið og hugsa um hann og fara í reiðtúra í fylgd með kennara. Um er að ræða frábært tækifæri fyrir krakka sem hafa komið till okkar á minnst tvö námskeið áður og geta og farið hraðar en fet og langar að eignast hest einhvern tíman og fá þá að sjá og prufa hvernig það er.